Fara í aðalefni

Madonna di Campiglio og nágrenni

Tímalengd: 8 Dagur/dagar , 7 nótt/nætur

Lýsing pakka

ATHUGIÐ: RÚTUR FARA AÐEINS TIL MADONNA DI CAMPIGLIO

Madonna di Campiglio Eitt þekktasta skíðasvæði Ítalíu

Madonna er einn þekktasti skíðabær Ítalíu sem er fallegt fjallaþorp í ríflega 1500 metra hæð yfir sjávarmáli. Þessi þúsund manna bær státar af fjölbreyttu skíðasvæði við allra hæfi, fallegum hótelum, glæsilegum veitingastöðum, verslunum og fallegu umhverfi.

Dóra og Nikkó

Eftir sjö ánægjuleg ár þar sem Dinna og Helgi hafa leitt ferðahópa um þetta einstaka 

skíðasvæði í Dólómítunum taka Hall­dóra Geirharðsdóttir (Dóra) og Nicolas Pétur Blin (Nikkó) við keflinu.

Dóra er þjóðþekkt leikkona sem ólst upp í skíðafjölskyldu þar sem Bláfjöllin voru annað heimilið. Nikkó er líffræðingur og reyndur fjallaleiðsögumaður sem hefur um árabil leitt hópa um fjöll og víðerni.

Þau eru bæði ástríðufullir skíðamenn og njóta þess að ferðast með fólki, skapa góða stemningu og deila gleðinni sem fylgir fjallalífinu.

Madonna di Campiglio skipar þeim sérstakan sess en þau hafa heimsótt svæðið margsinnis með fjölskyldu sinni og kynnst því vel. Þar sameinast frábær skíðamennska, ítölsk fjallamenning og einstök stemning sem hefur gert Madonna að einu vinsælasta skíðasvæði Alpanna.

 

Ferðalýsing

Úr miðbænum er stutt í lyftur og kláfa og skamman tíma tekur að komast upp í skíðalöndin ofan við bæinn. Sex mismunandi skíðasvæði eru aðgengileg frá Madonna di Campiglio. Brekkurnar eru bláar, rauðar og svartar- allt eftir getu hvers og eins. Hæstu brekkur eru í allt að 2600 metra hæð. Pradalago og Gröste svæðin eru þægilegust. Spinale og Cinque Laghi fela í sér fleiri áskoranir. Val di Sole og Pinzolo eru einnig spennandi valkostir innan lyftukerfis Madonna. Á svæðinu eru 150 km af brekkum, lyftur eru 58 talsins og eru opnar frá 8:30- 16:30 alla daga. Skíðaskólar eru margir í Madonna og boðið upp á skíðakennslu fyrir alla aldurshópa. Flest hótel eru í göngufæri við skíðalyftur og kláfa.

EINSTAKT SKÍÐASVÆÐI

Skíðasvæðið í Madonna hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Svæðið er vel skipulagt og kláfarnir fjórir, Pradalago, 5 laghi, Spinale og Gröste, flytja skíðafólk hratt og örugglega upp í brekkurnar. Lyftukostir eru fyrsta flokks og heimamenn hugsa einstaklega vel um sólríkar brekkurnar. Öll hótel Úrvals Útsýnar eru í göngufæri við kláfana.

FYRSTA FLOKKS BRAUTIR

Skíðasvæðið í Madonna hefur verið verðlaunað fyrir viðhald á skíðabrautum og leggja heimamenn mikið upp úr því að viðhalda því orðspori. Á hverjum degi má velja gott skíðasvæði með breiðum brautum og brekkum, fyrir nýgræðinga sem þaulvant skíðafólk. Þeir fyrrnefndu geta valið á milli 13 skíðaskóla.

 

EFTIR SKÍÐIN – LÍFLEGUR BÆR

Skíðasvæðið í Madonna hefur verið verðlaunað fyrir viðhald á skíðabrautum og leggja heimamenn mikið upp úr því að viðhalda því orðspori. Á hverjum degi má velja gott skíðasvæði með breiðum brautum og brekkum, fyrir nýgræðinga sem þaulvant skíðafólk. Þeir fyrrnefndu geta valið á milli 13 skíðaskóla.

HAGNÝTINGAR UPPLÝSINGAR

Hægt er að bóka sæti í flug og akstur á áfangastað, einnig er hægt að kaupa skíðapassa fyrirfram á skrifstofum okkar.

FERÐIRNAR ÚT OG HEIM: Við fljúgum til Verona og flugið tekur um 4 klst. Hver farþegi má hafa meðferðis sinn skíðaútbúnað en annars gilda almennar reglur 20 kg innritaður farangur og 5 kg í handfarangri. Aksturstími milli Verona og Madonna er um 3 klst..

LEIGUBÍLAR: Eftir skemmtilegan dag í brekkum Madonna getur fólk tekið leigubíl heim upp á hótel.

  • Taxi Davide: +39 336-539787
  • Taxi Bacca: +39 335-8189510
  • Taxi Bucella: +39 347-6058964

NAUÐSYNLEGUR BÚNAÐUR FYRIR FJALLAFERÐIR: Hjálmur – Sólgleraugu – Skíðagleraugu – Varasalvi – Sólarvörn – Peningar (greiðasölur taka ekki allar greiðslukort) – Farsími – Símanúmer (ef eitthvað skyldi koma upp á, a.m.k.númer fararstjóra, sem er best að setja í minni) – Leiðarlýsing (ef fara á utan alfaraleiða) – Bros

VEITINGSTAÐIR Í MADONNA: Það eru fjölmargir veitingastaðir á svæðinu og hér eru nokkrir sem við mælum með: Antica Focolare, Alfiero, Belvedere, Le Roi, Hungry Wolf, Coruja, Home Stube. Cantina del Suisee. Alhliða og góðir veitingastaðir. Á háannatíma er gott að panta borð. Auk þess er einn Michelin veitingastaður í bænum, Il Gallo Sedrone, og nokkrir staðir með meðmæli frá stjörnugjafanum víðfræga. Spyrjið bara fararstjóra.

VEITINGASTAÐIR Í BREKKUNUM: Fjölmargir notalegir staðir eru á skíðasvæðinu. Sumir rómaðir fyrir útsýni líkt og Chalet Fiat á toppi Spinale. Þar er best að panta borð og fararstjóri getur verið innan handar. Zeledria eða Steinastaðir á Pradalago-svæðinu er mjög skemmtilegur og hægt að mæla með Stoppani á toppi Gröste svo fátt eitt sé nefnt.

BARIR EFTIR SKÍÐI: Síðla dags safnast margir saman á Jumper-barnum neðst í Gröste. Þá er oft líf og fjör á Ober1 við Spinale kláfinn. Eins er ljúft að setjast við Righi-torgið á Bar Suisse og skoða mannlífið í síðdegissól og Majestic lounge er vinsæll viðkomustaður í lok dags

MATVÖRUVERSLANIR: Kaupfélagið er beint á móti Majestic við aðaltorgið og þá er líka Gormet markaður á Brenta torgi ofar í bænum.

HEILSAN: Heilsugæsla er við hliðina á Savoia Palace hótelinu og apótek við aðalgötuna. Ef leita þarf læknis hafið þá endilega samband við fararstóra sem aðstoða ykkur við það.